Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Get ekki hætt að blogga

Ég hef trúlega fengið bloggkast þar sem ég hafði ekki tíma til að blogg í svo langan tíma. Ég tók þá ákvörðun að skipta um þema og taka myndina af Ísafirði út af þar sem hún passar ekki inn í þetta fallega listaverkaþema. Ég vil endilega hafa rautt þema yfir jólin og svo verður að koma í ljós hvort ég skipti ekki aftur eftir jól. Ég er ekki búin að taka myndir af öllu jölaskrautinu hér í íbúðinni ennþá. Það er svo sem nóg að gera frammundan , getur vel verið að myndirnar komi ekki fyr en milli jóla og nýjárs ,ég veit það ekki enn þá en þær koma. Ég tek alltaf myndir af jólauppstillingunum mínum , bara gamall vani. Ég hef svo mikin áhuga á myndum.

Ég lenti nú heldur betur í því í fyrra, þegar ég ætlaði að fara að tæma vélina á Þorláksmessu , búin að hlaða batteriin og allt en svo þegar ég fór í töskuna þar sem vélin var alltaf geymd,aftan á stölnum. Þá greyp mín í tómt Frown Já,það var eingin myndavél í töskunni minni sem þýddi að ég gat ekki tekið neinar myndir yfir jólin. Ekki alveg fyrir mig. En ég fór á milli jóla og nýjárs og fékk nýja vél, reyndar miklu betri og fullkomnari. Annað merki. Þannig að ég gat tekið myndir af restin af jólunum. 

Ég fékk þá skýringu að þjóðfélagið væri orðið svoleiðis að vasaþjófar hafi trúlega ætlað að reyna að næla sér í peningaveski en gripið í myndavél sem þeir sem sá hin sami hefur reynt að selja. 

En ég var að vissu leiti heppin ef ég hefði geymt seðlaveskið í töskunni og sá sem tók vélina gripið það hefði ég tapað miklu meiru þó að ég hafi tapað dýrmætum myndum þarna.


Höfundur

Elísabet Sigmarsdóttir
Elísabet Sigmarsdóttir

Ég hef mikinn áhuga á ferðalögum, börnum og eldamensku. Ég hef ferðast töluvert.t.d til Nýja Sjálands sem var alveg æðislegt, er mjög ánægð með að hafa gert það áður en ég þurfti að láta undan þróskunni og setjast alveg í hjólastól en það eru 10 ár síðan ég þurfti að gera það , sama ár og ég fór og ég kom heim frá NZ.

esigmarsdottir@simnet.is

------------------------------------

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Smelltu á þetta...

Ég er hér, kýktu<<<<<<<<<<

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband