9.12.2008 | 16:23
Minning Kristinn Óskarsson fv. lögregluþjónn
Ég hitti Kidda frænda fyrst 2ja ára gömul, en þá fór mamma með mig upp á lögreglustöð að skipta um heimilisfang og heimóttum við þá frænda í leiðinni. Ég var ofboðslega hrifin af öllum gyltu hnöppunum. Mér skilst að hinir lögregluþjónarnir hafi orðið hrifnir af mér þar sem ég ekki eldri en þetta talaði íslensku við frænda en ekki barnamál .Þá fékk ég að sjá enn fleiri gyllta hnappa. Ekki leiðinlegt hjá mér , mamma átti í erfiðleikum með að fá mig með heim ,ég var nú aldrei erfitt barn er mér sagt en ég vildi verða eftir hjá frænda.
Þegar ég var ca.3ja ára handtók Kiddi frændi mömmu í fullum skrúða niður á Laugarvegi . Ég varð smá hrædd en ég var fyrir framan þau með ömmu og afa sem voru í heimsókn frá Ísafirði. En þegar allir fóru að hlæja áttaði ég mig á að Kiddi frændi var bara að grínast. Hann myndi aldrei handtaka mömmu mína .
þetta er mín fyrsta minning af honum kidda frænda mínum. Svo liðu árin og við hittumst ekkert því miður . Ég var komin að þrídugu þegar ég hitti Kidda frænda næst. Hann kom í heimsókn í Strandaselið og þá var frændi orðin ansi fullorðin en bar það ekki með sér keyrði bíl . Það var mjög gaman að tala við hann, ég sagði honum frá ferð minni til Nýja Sjálnds sem ég fór í Des1997 og kom heim Jan 1998 ,ég var að heimsækja móðurbróður minn og fjölskyldu . Frænda fannst þetta merkilegt að ég hefði drifið mig yfir hálfan hnöttinn og enginn í fjölskyldunni búin að fara nema bróðurdóttir mömmu. En það skal tekið framm að það fynnst kanski merkilegt við að ég fór út að ég fór ein og er hreyfihömluð en er ekkert að gorta mig af því . Mig langaði mikið og þá var að drífa sig. Ég tók líka mikið af myndum sem frænda fannst mjög gaman að sjá af frændfólki sem hann hafi aldrei séð
Eftir þessa heimsókn kom frændi reglulega á meðan hann hafði heilsu til og svo var alltaf regluegt símasamaband. Mamma var nýbúin að tala við Ágústu í síma þegar frændi kvaddi þennan heim en við vissum að hverjum stemdi.
Ég votta Ágústu og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð,
blessuð sé minning frænda
Elísabet Sigmarsdóttir
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:32 | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Alexandra Guðný Guðnadóttir
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Ásgeir Páll Ágústsson
- Bergrún Ósk Ólafsdóttir
- Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir
- Bergur Thorberg
- Bergljót Hreinsdóttir
- Brynja skordal
- egvania
- Ein-stök
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Ellý
- Ellý Ármannsdóttir
- Erna Sif Gunnarsdóttir
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Friðjón R. Friðjónsson
- Grétar Örvarsson
- Guðrún Hauksdóttir
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Gúnna
- Heiða B. Heiðars
- Heiða Þórðar
- Halla Rut
- Heidi Strand
- Hulda Sigurðardóttir
- Heiðrún Björk Jóhannsdóttir
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Jens Guð
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jakob Kristinsson
- lady
- Karl Tómasson
- Kristveig Björnsdóttir
- Maddý
- Margrét Sverrisdóttir
- Morgunblaðið
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Rannveig H
- Steinunn Camilla
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigríður Guðnadóttir
- Sigrún Sigurðardóttir
- Sölvi Breiðfjörð
- Þórarinn Þ Gíslason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- sur
Tenglar
Mínir tenglar
- Einstök börn Félag barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma
- Bæjarins besta
- Mnd Mnd félagið á Íslandi
Bloggararnir mínir
- Elín Bjjörk Veðurfræðingurinn góði
- Eva Dögg vinkona
- Gaui og fjölskylda Þetta er BARA frábær fjölskylda
- Palli Mjög góður maður
- Þórunn Góð vinkona og konan hans Palla
Athugasemdir
Sæl kæra frænka.
Alltaf erfitt að kveðja sína nánustu.
Megi almáttugur Guð gefa þér styrk á þessum tímamótum.
Vertu Guði falin.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.12.2008 kl. 00:26
Samhryggist þér með frænda vinan mín, en svo gott að eiga minningarnar eftir.
Ljós og gleði til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.12.2008 kl. 13:00
Það koma margar minningar upp í hugann þegar einhver náinn fellur frá.
Það eru oftast góðar minningar.
Votta þér samúð mína.
Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 13.12.2008 kl. 16:28
Kæru bloggvinkonur,
Þakka ykkur fyrir kveðjurnar. Frændi var kvíldinni feginn . 90 ára gamall.
Elísabet Sigmarsdóttir, 14.12.2008 kl. 14:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.