1.6.2008 | 18:45
JET BLACK JOE Tónleikarnir - loksins
Já, nú er langt síðan ég hef getað látið heyra í mér. En þó liðnar séu 2 vikur síðan ég fór á tónleikana méð JET BLACK JOE þá verð ég að segja ykkur frá þessari frábæru upplifin. Palli byrjaði að syngja nokkur lög af sínum sólóferli , alveg meiriháttar. Á meðan Palli fór í rokkgallan , söng Edgar Smári nokkur lög. Svo komu Palli , Gunni Bjarni og restin af JET BLACK JOE . Þetta voru alveg frábærir tónleikar. þeir tóku öll gömlu góðu lögin . En hápúnkturinn var þegar hún frænka mín steig á svið ,það brjálaðist allt, enda hefur Sigga Guðna alldrei sungið Freedom opinberlega áður.
Fyrir mér voru 2 hápunktar á þessum tónleikum þar sem ég fékk að fara bakvið og hitta Palla frænda minn og hana Siggu mína, þetta var þvílik uplifun og þakka ég Siggu fyrir að koma þessu fyrir . Ég hitti fullt af fólki sem ég hefði ekki hitt , sumt hafði ég séð áður sumt hitt en sumt alldrei séð og mun alldei sjá.
Cris sem kom með mér sem aðstoðar maður gerði lítið annað en að taka myndir fyrir mig enda er mikið til af myndum frá þessum tónleikum en aðeins brot komið hér, hann lagaði líka þær sem þurfti að laga.
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Alexandra Guðný Guðnadóttir
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Ásgeir Páll Ágústsson
- Bergrún Ósk Ólafsdóttir
- Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir
- Bergur Thorberg
- Bergljót Hreinsdóttir
- Brynja skordal
- egvania
- Ein-stök
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Ellý
- Ellý Ármannsdóttir
- Erna Sif Gunnarsdóttir
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Friðjón R. Friðjónsson
- Grétar Örvarsson
- Guðrún Hauksdóttir
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Gúnna
- Heiða B. Heiðars
- Heiða Þórðar
- Halla Rut
- Heidi Strand
- Hulda Sigurðardóttir
- Heiðrún Björk Jóhannsdóttir
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Jens Guð
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jakob Kristinsson
- lady
- Karl Tómasson
- Kristveig Björnsdóttir
- Maddý
- Margrét Sverrisdóttir
- Morgunblaðið
- Ragnheiður Sigfúsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Rannveig H
- Steinunn Camilla
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Sigríður Guðnadóttir
- Sigrún Sigurðardóttir
- Sölvi Breiðfjörð
- Þórarinn Þ Gíslason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- sur
Tenglar
Mínir tenglar
- Einstök börn Félag barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma
- Bæjarins besta
- Mnd Mnd félagið á Íslandi
Bloggararnir mínir
- Elín Bjjörk Veðurfræðingurinn góði
- Eva Dögg vinkona
- Gaui og fjölskylda Þetta er BARA frábær fjölskylda
- Palli Mjög góður maður
- Þórunn Góð vinkona og konan hans Palla
Athugasemdir
Elsku dúlla - takk fyrir falleg orð þú ert alveg yndisleg og er stolt af því að eiga þig fyrir frænku !!!!
knús kveðjur
Sigríður Guðnadóttir, 1.6.2008 kl. 19:34
Ég þakka líka fyrir falleg orð Sigga mín ef þú ert ekki búin að sjá það þá er ég mjög stollt af því að eiga þig fyrir frænku. Þú ert líka alveg yndisleg og ég er mjög heppin.
Góð kveðja
Elísabet Sigmarsdóttir, 1.6.2008 kl. 20:35
Sæl frænka.
Mikið hefur þetta verið skemmtilegt. Páll Rósinkrans hefur komið hingað og haldið tónleika. Ég var fljót að segja honum að hann ætti nóg af ættingjum hér úr Tröllatunguætt. Óskar Einarsson kom með honum og sá um músíkina. Þetta var magnað.
Guð veri með þér.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.6.2008 kl. 23:53
Það er ánægjulegt að þú skulir hafa getað upplifað þessa tónleika svo ekki sé minnst á að þú hafir getað séð hana Sigríði Guðnadóttur frænku þína syngja þetta frábæra lag. Ég efast ekki um að þetta hafi verið einstök upplifun fyrir þig og ekki síður fyrir Siggu og Palla að geta sungið fyrir þig þetta kvöld. Megirðu eiga margar slíkar ánægjustundir í framtíðinni.
Kveðja Sölvi Breiðfjörð
Sölvi Breiðfjörð , 5.6.2008 kl. 20:46
Þetta hefur verið aldeilis flottir tónleikar Elísabet mín. Knús á þig og takk fyrir kveðjuna skila líka kveðju til Rósu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.6.2008 kl. 14:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.