Leita í fréttum mbl.is

Minning Margrét Oddsdóttir

 

 

Foreldrar Margrétar voru Oddur Pétursson, bæjarverkstjóri á Ísafirði, og Magdalena M. Sigurðardóttir, húsmóðir og gjaldkeri Menntaskólans á Ísafirði. Margrét lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands 1982. Hún stundaði sérfræðinám í skurðlækningum við Yale University School of Medicine og sérfræðinám í kviðsjáraðgerðum við Emory University School of Medicine í Atlanta í Georgíu.

Margrét starfaði sem sérfræðilæknir á Landspítala frá 1994 til dauðadags. Hún var ráðin yfirlæknir í almennum skurðlækningum 2002, skipuð dósent í almennum skurðlækningum við læknadeild HÍ 1995 og prófessor frá 2002. Margrét gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Landspítala og Háskólann og sat í stjórn læknadeildar þar til hún lést. Hún var brautryðjandi á sviði kviðsjáraðgerða, fyrst í Bandaríkjunum og síðar hér á landi og eftir hana liggur fjöldi vísindagreina í alþjóðlegum læknatímaritum.

Margrét giftist árið 1985 Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, blaða- og fréttamanni, en hann lést árið 2007. Synir þeirra eru Oddur Björn nemi, (f. 1991), Sigurður Árni (f. 1993) og Ragnar Már (f. 1993, d. 1993). Stjúpbörn Margrétar eru Sigríður Jónsdóttir viðskiptafræðingur og Þorgrímur Darri Jónsson viðskiptafræðingur.

(  Mbl.is)

Fallin er frá einn okkar færasti skurðlæknir , Margrét Oddsdóttir,

 

Margrér eða Magga eins og hún var alltaf kölluð á mínu heimili var í læknateymi með Páli E Ingvarssyno og  Reymond Onders sem er frá Bandaríkjunum. Þetta læknateymi hjálpaði mænusködduðu fólki mikið og batt folk miklar vonir við hjálp þeirra og átti Magga mikinn þátt í því .

Báðar vorum við Magga ættaðar frá Ísafirði , hún var fædd þar eins og móðir mín  og á ég mjóg sterkar rætur þangað. Móður afi minn,Siggi Jónasar í Króknum (Sigurður Jónasson) og Oddur Pabbi Möggu vinnufélagar og vinit

Fyrir ca. 6 árum þurfti ég að fara í stóra aðgerð hjá Möggu og komst þá að því að hún var ekki bara góður læknir heldur hugsaði um mannlegu hliðina og  gaf sér svo góðan tíma með sjúklingunum sínum. með mér fylgdist fylgdist hún í tvö ár sem henni þótti nauðsinlegt.

Sjálf hitti ég Möggu síðast fyrir um það bil ári og var hún snögg að koma mér í góðar hendur hjá öðrum sérfræðingi en mig grunaði ekki að þetta væri í síðasta sinn sem ég hitti hana.

Enginn kemur í þinn stað elsku Magga mín

Hvíl þú í friði.

Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um réttan veg
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt því þú ert hjá mér.

Sproti þinn og stafur huggar mig.
Þú býrð mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyrð höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi drottins bý ég langa ævi.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.

(23. Davíðssálmur/Margrét Scheving)

Kæru synir foreldrar og systikini ,

 ég votta ykkur mna dýpstu samúð

Guð veri með ykkur ,

Elísbet

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: egvania

egvania, 16.1.2009 kl. 21:54

2 Smámynd: Ragnheiður

Ragnheiður , 17.1.2009 kl. 21:00

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessa fallegu minningarræðu um Möggu Odds.  Ég sendi foreldrum hennar mínar innilegustu samúðarkveðjur.  Við Oddur unnum lengi saman á tæknideild Ísafjarðarkaupstaðar.  Fallin er frá frábær kona og læknir blessuð sé minning hennar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.1.2009 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Elísabet Sigmarsdóttir
Elísabet Sigmarsdóttir

Ég hef mikinn áhuga á ferðalögum, börnum og eldamensku. Ég hef ferðast töluvert.t.d til Nýja Sjálands sem var alveg æðislegt, er mjög ánægð með að hafa gert það áður en ég þurfti að láta undan þróskunni og setjast alveg í hjólastól en það eru 10 ár síðan ég þurfti að gera það , sama ár og ég fór og ég kom heim frá NZ.

esigmarsdottir@simnet.is

------------------------------------

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Smelltu á þetta...

Ég er hér, kýktu<<<<<<<<<<

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband