Leita í fréttum mbl.is

Minning Kristinn Óskarsson fv. lögregluþjónn

 Ég hitti Kidda frænda fyrst 2ja ára gömul, en þá fór mamma með mig upp á lögreglustöð að skipta um heimilisfang og heimóttum við þá frænda í leiðinni. Ég var ofboðslega hrifin af öllum gyltu hnöppunum. Mér skilst að hinir lögregluþjónarnir hafi orðið hrifnir af mér þar sem ég ekki eldri en þetta talaði íslensku við frænda en ekki barnamál .Þá fékk ég að sjá enn fleiri gyllta hnappa. Ekki leiðinlegt hjá mér , mamma átti í erfiðleikum með að fá mig með heim ,ég var nú aldrei erfitt barn er mér sagt en ég vildi verða eftir hjá frænda.

Þegar ég var ca.3ja ára handtók Kiddi frændi mömmu í fullum skrúða niður á Laugarvegi . Ég varð smá hrædd en ég var fyrir framan þau  með ömmu og afa sem voru í heimsókn frá Ísafirði. En þegar allir fóru að hlæja áttaði ég mig á að Kiddi frændi var bara að grínast. Hann myndi aldrei handtaka mömmu mína .

þetta er mín fyrsta minning af honum kidda frænda mínum. Svo liðu árin og við hittumst ekkert því miður .  Ég var komin að þrídugu þegar ég hitti Kidda frænda næst. Hann kom í heimsókn í Strandaselið og þá var frændi orðin ansi fullorðin en bar það ekki með sér keyrði bíl . Það var mjög gaman að tala við hann, ég sagði honum frá ferð minni til Nýja Sjálnds sem ég fór í Des1997 og kom heim Jan 1998 ,ég var að heimsækja móðurbróður minn og fjölskyldu . Frænda fannst þetta merkilegt að ég  hefði drifið mig yfir hálfan hnöttinn og enginn í fjölskyldunni búin að fara nema bróðurdóttir mömmu. En það skal tekið framm  að það fynnst kanski merkilegt við að ég fór út að ég fór ein og er hreyfihömluð en er ekkert að gorta mig af því . Mig langaði mikið og þá var að drífa sig. Ég tók líka mikið af myndum sem frænda fannst mjög gaman að sjá af frændfólki sem hann hafi aldrei séð

Eftir þessa heimsókn kom frændi reglulega á meðan hann hafði heilsu til og svo var alltaf regluegt símasamaband. Mamma var nýbúin að tala við Ágústu í síma þegar frændi kvaddi þennan heim en við vissum að hverjum stemdi.

 

Ég votta Ágústu og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð,

blessuð sé minning frænda

Elísabet Sigmarsdóttir


Yndisleg heimsókn

Á Miðvikudaginn fyrir viku fékk ég alveg yndislega heimsókn. Hún Jóhanna frænka mín frá Valshamri kom í fyrsta skipti. Jóhanna er amma Palla Rósinkranz, og móðir Siggur Guðna en þau eru nú samt ekki mæðginSmile ha ha hæ Jóhanna er 8o ára gömul. Hún er alveg ótrúlega hress, keyrir um alla borg. Margir eiga ekki auvelt með að rata hingað til mí í fyrstu tilraun , villast aðeins . Enda fynnst mér vera boðið upp á það . Jóhanna frænk rataði í fyrstu tilraun. Ekki málið Smile

 

Jóhanna frænka og Elísabet

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jóhanna frænka og Elísabet

Mamma og Jóhanna frænaka

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Katý (mamma ) og Jóhanna frænka, það er ekki frítt við svip af ömmu - Betu á Jóhönnu á þessari mynd. 


Jólakortasala Einstakra barna í Smáralindinni

Mig langr að mynna á Jólakortasölu sem Einstök börn verða með í Smáralindinni,mættum kl.11  að selja jólkortin okkar. Því miður kem ég myndinni af kortinu ekki  inn , en hún er mjög jólaleg eftir listakonuna Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttir . Kortið er 12*17 og passar fyrir mynd .

Verð 10 stk, 1000 kr  Við verðum í Smáralindinni til kl.17 í dag hjá Hagkaup og fra kl. 13-17 á morgun Sunnudag. Hlakka til að sjá ykkur.

 


Komin aftur

Þó að ég hverfi úr bloggiheimum í einhvern tíma þá þýðir það ekki að ég sé advinnulaus bloggari eða aumingi sem ónefnd útvarpskona sagði í morgun , hún bætti reyndar aumingjanum við í þætti sínum í morgun . Staðreyndin er reyndar sú að ég er óvinnufær bloggari en hún vildi meina að við hefðum ekkert að gera nema að blogga. En síðan mín er gott dæmi um annað. Ég hef ekki haft tíma til að blogga síðan já, ég man ekki hvenær ,jú ég setti inn afmæliskveðju 20. okt. sl. Mér var gefin sá hæfileiki að mér leiðist alldrei , hef alltaf til eithvað fyrir stafni. Ég veit að það er ekki öllum þetta gefið og er ég bara heppin með þetta Í þessum ónefnda þætti hefur líka verið talað um nafnlaust blogg og hefur Jón Valur verið duglegur að tala um hvorutveggja sem ég hef verið að nefna en ég vil meina að við sem setjum fullt nafn inn þegar við stofnum síðuna , bloggum undir fullu nafni þó að ég t.d kalli mig Lísó. Það er hægt að breyta því að mig minnir undir stillingar. Þá kemur það nafn sem fólk hefur sett þar sem flestir setja fullt nafn . Persónuleg fynnst mér að fólk eig að blogga undir nafni.

Ég er farin að undirbúa jólin þannig að ég er byrjuð að búa til jólakotin í tölvunni , er að læra á forrit í tölvunni minni þar sem ég get búið til kort með myndum sem ég á, þetta er ferlega sniðugt og sérlega fyrir okkur sem ekki getum skrifað með penna. 

Forritið sparar mér mörg þúsun kr. Reyndar hún Adda vinkona mín líka þar sem hún er að kenna mér á forritið .

Ég var líka að pakka jólakortum fyrir Einstök börn , félag barna með sjaldgæfa,alvarlega sjúkdóma. Kortin eru mjög falleg í ár. Það eru 10 kort í pakkanum og kosta 1000 kr.  Ég hvet alla að koma í Smáaralindina á helginnni og kaupa kort hjá okkur í Einstökum börnum.

Ég ætla að reyna að útvega mér mynd af kortinu og setja hana hér inn. 


Hún á afmæli í dag...

...hún á afmæli í dag , hún á afmæli í dag hún mamma , hún er 66 ára í dag!!

Elsku mamma innilega til hamingju með afmælisdaginn þinn , megir þú njóta hanns í botn.

 

 

Þín dóttir ,

Elísabet. 

Glitter Graphics

Rose Glitters


Þjónustuver Vodafone

Nú rétt í þessu hringdi í þjónustuver Vodafone til að ath. hvenæt þeir ætla að taka í notkun sms í hemasímum? Konan sem svaraði mér gat ekkert svarað mér um það hún vissi ekkert um hvort Vodafone tæki þessa þjónustu upp. Ég  var ekki ánægð  þar sem Síminn er löngu búinn að taka þetta upp og þessi þjónusta búin að vera hér á landi ansi lengi eftir því sem ég veit.  Ég benti henn á að þetta væri mjög slæmt fyrir fólk í minni stöðu eins og hún er núna , ligg upp í sófa, heimilissíminn á borðinu hjá mér en gsm síminn inn í eldhúsi t.d og ég í hjólastól . Ekki nenni ég alltaf að drösslast yfir í stólinn þegar ég er búin að koma mér fyrir í sófanum. Svörin sem ég fékk voru að það væru flestir með gsm, þá benti ég henni á mínar aðstæður, svarið sem ég fékk vae já, ég ræð engu . Það er framkvæmdastjórinn sem ræður. Ég Var reyndar búin að halda heljar ræðu yfir konunni um hvað þetta væri óréttlátt gagnvart okkkur kúnnunm . Spurði loks á hvaða tíma ég ætti að hringja til að fá að tala við framkvæmdastjóra Vodafone? Þú Þú getur ekki hringt í hann, við erum hér til að svar spurnnigum. Þá spurði ég um nafn mannsins og þá sagði hún , hann vill ekki að við gefum upp nafnið á sér , ég varð mjög hissa og benti henni á að hún væri að tala við kúnna firirtækisins og það góðan . Það var alveg sama . Maðurinn vill ekki að kúnnarinir viti hver hann er eða hvað hann heiti Reyndar globraði hún því út úr sér að hún vissi ekki hvað hann heitir og ég hváði , þá sagði hún hálf aumingjalega jú, ég er búin að fletta þvi upp , þá spurði ég enn aftur um nafnið á honum en fékk það ekki.

Ég spyr er hægt  að framkvæmdastóri hjá svona stóru fyrirtæki geti leint nafni sínu fyrir kúnnum sínum

 


Klukk , klukk.klukk

Jæja þá er það enn eitt klukkið sem ég svara bara þar sem ég ligg heima, var klukkuð af

 

4 störf sem ég hef unnið á,

Lansbanki ísl. Mjódd , símavarsla

Egill Árnason EHF Símavarsla

Stöð 2 Myndlyklaverkefni, símavarsla

stöð 2 fjölvarp nokkrum mán eftir verkefnið

Gallup

 

4 BÍÓ MYNDIR SEM ÉG HELD UPP Á

Mamma mía

 

  

 

 

4 STAÐIR SEM ÉG HEF BÚIÐ Á

Reykjavík, (klukk) 

4 STAÐIR SEM MIG LANGAR AÐ VERA Á NÚNA

Nýja Sjáland, norður eyjan, Ísafjörður,Boston og Köben 

 4 sjónvarpsþættir sem ég horfi á

Dagvatin, Útsvar, CSI NY House

HEIMASÍÐUR SEM HEIMÆKI DAGLEGA FYRIR UTAN BLOGGSÍÐUR 

MBL.IS

VEÐUR.IS 

 leikjanet.is ( þessa dagana

 youtube.com

 

Bækur sem ég les oft

 

vegna lesblindu les ég mjög læitið.las síðast

Postulín og er bók sem ég mæli með að allir sem

ekki eru búnir að lesa , lesi.

 

ÉG ÆTLA EKKI AÐ KLUKKA NEINN, ÞAR SEM ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ KLUKKA MIG

ÁKVAÐ BARA AÐ SVARA ÞESSUM SPURNINGUM. REYKNA MEÐ AÐ ALLIR SÉU GLAÐIR

SEM LESA ÞETTA. 


Alltaf verður maður meira hissa!!!!

Ég var að kaupa mér nýjan heimilssíma og bloutooth sem tekur tvo síma þess vegna er ég bara með heimilisíman hjám mér núna þó ég liggi í rúminu og sé ein heima. Ég ætlaði að fara að senda liðveislunni minni sms úr hs. mínum því að hann bíður upp á það en Vodafone bauð ekki upp á það í fyrra svo ég hringdi í 1414 til að fá upplýsingar um hvort það væri ekki komið í gegn ?  Svarið var , nei, við höfum ákveðið að taka þetta ekki upp þar sem flestir senda sms í gegnum gsm símana og þetta yrði miklu dýrara. Svo sýna kannanir erlendis að þetta er ekkert notað. Ég benti honum á að ekki þyddi að fara eftir erlendum könnunum fyrir Ísland.  þetta er í fyrsta skipti sem ég er ekki ánægð með þjónustuna hjá Vodafone.

flott mynd

Nú á dögum fékk ég fullt af flottum myndum sendar frá Rósa frænda , teknar af búgarðinum þeirra. Það var mjög gaman að fá þær og ryfjaði upp gamlar góðar minningar Hér ætla að setja inn eina fallega mynd inn.

 

Nú er ég löggst aftur. Þettar er  farið að  fara frekar mikið í taugarnar á mér. Ég var búin að vera hress í viku þegar ég leggst aftur.

Nú er bara að haf samband Við sérfræðing upp á Gresnás, sem þekkir inn  á  sjúkdóm minn og vita hvort þetta sé ekki eithvað sem fylgir honum ekki.

 

Þessi mynd  og allar hinar  rifja upp góðar  minningar fyrir mér síðan ég fór út til Rósa og fjölsk.a


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Elísabet Sigmarsdóttir
Elísabet Sigmarsdóttir

Ég hef mikinn áhuga á ferðalögum, börnum og eldamensku. Ég hef ferðast töluvert.t.d til Nýja Sjálands sem var alveg æðislegt, er mjög ánægð með að hafa gert það áður en ég þurfti að láta undan þróskunni og setjast alveg í hjólastól en það eru 10 ár síðan ég þurfti að gera það , sama ár og ég fór og ég kom heim frá NZ.

esigmarsdottir@simnet.is

------------------------------------

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Smelltu á þetta...

Ég er hér, kýktu<<<<<<<<<<

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband