Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Get ekki orða bundist!

Þegar OL fór framm fór Forseti Ísl. með liðinu okkar út ásamt þess sem Þorgerður Katrín fór 2 ferðir út til Kína. Nú standa yfir ÓL fatlaðra sem ég kýs að kalla hreyfihamalaðra þar sem orðið fötlun er svo teygjanlegt. Forsetinn okkar er ekki á þessum ÓL , ekki heldur Þorgerður Katrín en Jóhanna Sigurðardóttir er verndari leikana og er því á leikunum. Mér hefði þótt eðligast að Forseti landsins væri verndari leikana þó að ég sé ekkert á mót Jóhönnu .

Annað varðandi ÓL hreyfihamlaðra er að Ruv sendir alldrei beint frá þessum leikum vegna og lítils áhorf að þeirra sögn og einnig of mikils kosnaðar. Ég spyr hafa þeir mælt áhorf með skoðanna könnun. Adolf Ingi er ennþá út í Kína, það er ekkert ÓL kvöld á dagskránni , er búina ð ath, nökkur kvöld framm í tíman. Eg hringdi fyrir ÓL 2000 og 2oo4 niður í Ruv og fékk ofangreind svör. Ég hvet alla þá sem áhuga hafa á að sjá beint frá þessum leikum að hringja niður á Ruv. Þá kemur í lós hvort það er áhugi. Það er nefnilega eins og hreyfihamlaðir séu annarflokks fólk . En við erum það auðvitað ekki 

 


Hver verður nætsur??

 

3.9.2008 | 13:05

Soffía

 Veikindi og erfiðleikar gera sjaldnast boð á undan sér, það fær hún Soffía sem er kona á fertugsaldri að reyna þessa dagana,  hún þarf á hjálp okkar og fyrirbænum að halda

 Soffía greindist með æxli í höfði í byrjun Ágústmánaðar, Soffía og börn hennar þrjú voru í sumarbústað austur á landi. Og þá fór meinið að gera vart við sig með sjónsviðsskerðingu á vinstra auga, svima og ljósfælni. Þrátt fyrir öll þessi einkenni tókst henni til allrar guðs lukku að koma sér og börnunum heim í Hafnarfjörðinn heilu og höldnu. Þegar heim var komið fóru einkennin versnandi og á endanum fór Soffía uppá bráðavakt, þar sem gerðar voru rannsóknir og höfuðmynd tekin. Á þeirri mynd sáu læknarnir eitthvað sem krafðist frekari athugunar.  Daginn eftir var hún send í segulóm myndatöku, og þá kom í ljós að um æxli væri að ræða.  Aðeins viku eftir greiningu gekkst Soffía undir stóra aðgerð sem tók 7 tíma, aðgerðin gekk vel en einungis var hægt að fjarlægja helminginn af æxlinu.  Sýni sem tekin voru sýndu að næsta skref yrði geislameðferð og hefst hún að viku liðinni.  Soffía er enn með skert sjónsvið og ljós og minnsti hávaði fara illa í hana.  Soffía á 3 börn, 21 árs gamla dóttur og 2 syni 6 ára og 9 mánaða. Maður hennar og faðir barna hennar lést fyrir ári síðan í bílslysi og hét hann Jóhannes Örn.

Soffía dvelst enn á sjúkrahúsi og óvíst hvenær hún fær að fara heim, hún verður óvinnufær um óákveðinn tíma, hún hefur starfað sem húsvörður í blokk og búið í húsvarðaríbúðinni. Það er því ljóst að hún mun verða húsnæðislaus og atvinnulaus með börnin sín þrjú.

Stofnaður hefur verið reikningur til styrktar fjölskyldunni og er hann sem hér segir Reikningsnúmer: 0140-05-14321 kennitala: 161069-3619

ath: kennitalan var röng en núna er hún komin í lag

 

Ég hvet fólk að setja þessa færslu inn  hjá sér því hver veit hver er næstur???? 


Loksins komið rétt inn

Í fyrramálið er ég að fara í maraþonið og hvorki meira né minna en hálf maraþon. 21.1 km Já nú hugsa sumir að ég ekki í lagi, manneskja í hjólastól fer ekki svona langa leið , kanski 3 km. En það vita ekki allir að ég og 3 aðrir hreyfihamihamlaðir förum í íþróttastólum sem Íþróttasamband Fatlaðra á , og ætla menn úr slökkviliðinu að ýta okkkur.  Þetta verður bara gaman  Wink

Ég var að reyna að fynna myndir úr maraþoni síðasta ár af stólunum en það er búið að taka þær út þannig að ég verð bara að reyna að muna að setja inn myndir frá þessu maraþoni ef það verður myndasmiður á þeirra vegum eins og í fyrra. 

Ef einhver vill heita á mig þá ætla ég að styrkja Barnaspítalasjóð Hringsinins, það fór ekki rétt félag inn og var það leiðrétt i morgun . 

 

Takk fyrir Smile


Bryndís í afmælisheimsókn

Á Fóstudaginn kom Fríður með Andru og afmælisprinsessuna frá deginum áður í heimsókn , hana Bryndísi,  þegar hún hringdi til að vita hvort við værum heima að hún væri að koma til að sækja afmælisgjsgjöfina svaraði hún játandi  þegar ég spurði hana.Það var mjög gaman að fá þær í heimsókn. Bryndís kom með köku handa okkur.Hún fékk afmælisgjöfina og var mjög ánægð, fullt af penning. Einn peining fyrir hvert ár! Svo þegar við vorum búnar að drekkar kaffið ,Katy frænka búin að ná í Bangsimon kassan og hún var að lesa þá fóru Fríður og Katý heim til katýar og það fannst Bryndísi svolítið skrýti en var mjög góð á með að leika með Andreu og Andra, nýju Baby born tvíburana sína.

En þegar þær komu aftur mátti Bryndí vart mæla og útskýra myndirnar hér á efti það.Reynir a� opna pokan til a� sj� hva� er � honum

 

 

 

 

 

 

 

IMG_1483

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

IMG_1491

 

 

 

 

 

 

 

Tvíburarnir komast báðir í dúkkuvaggninn

sem Elísabet átti þegar hún var lítil en

Bryndís á núna.

IMG_1470

 

 

 

 

 

 

 

 

Bryndís með tvíburana sína Andra og Andreu 


Hneyksluð á TR

Litil vinkona min sem verður bráðum 9 ára og er langveik en er ofboðlsega dugleg hún þarf að fara til Alabama og vonandi verður hægt að hjálpa henni eithvað þar, hér koma smá upplýsingar um vinkonu mína en hún er fædd með sjaldgæfan sjúkdóm sem hetir NF 1

Hún er með æxli frá nefkoki niður að barkaloku og þar af leiðandi er hún með barkatúbu sem er túba í hálsi sem að hun andar í gegnum í staðin fyrir að anda í gegnum munn og nef eins og aðrir. Hún á við málörðuleika að stríða út af þessari túbu og æxlinu í kokinu á henni en Bryndís Guðmundsdóttir talmeinasérfræðingurinn hennar segir að hún sé svakalega dugleg og að hún tali meira en hún eigi að geta.

Þetta er tekið af heimasíðunnar hennar sem er http://barnaland.is/barn/44169/

 þessi lilta vinkona mín á systur sem er 2ja og hálfs árs . TR Borgar ekki undir hana , á hún að vera ein heim????? Aðstæður eru þannig að enginn er heima til að sinna barninu. Mér fynnst þetta hneyksli , svona lítil börn eiga að fá að fylgja mömmu og pabba ,en  þegar foreldrarnir geta ekki unnið frá börnunum er skiljanlega lítið um peninga.

TR MÁ FARA AÐ ENDURSKOÐA ÞESSAR REGLUR SÍNAR


Ósk um liðveislu , getur þú hjálpað mér

Ef allir hugsuðu eins og megnið af bloggheimi moggabloggsins, undirtektir sem við Hallar Rut höfum fenið eru hreynt stórkostlegar, Halla Rut er hreynt ótrúleg kona setur af stað auglýsingu á netið sem er búin að vera þar í rúman sólahring. Fjöldi fólks er búin að færa auglýsinguna yfir á sína síðu þannig að það er að myndast hringur eða það gæti gerst.

Þetta snýst um það að mig vantar liðveislu og er búið að gera það í ca 7 mán sem er allt of langur tími í mínu tilfelli 1 mán er of langur tími. Ég fæ úthlutaða 16 tíma á mán. sem er að mínu matí ekki langur tími en sumir fá færri tíma þannig að ég má vera heppin.

Ég hef áhuga á tónlist,fara á tónleika að fara á kaffihús, bíó,leikhús , ferðast og útiveru

 


Bloggvinir

Glitter Graphics

Hello Glitter Pictures

Það hefur verið mikið að gera hjá mér í sumar þó að engin séu ferðalögin og fyrir vikið hef ég vanrækt bloggvini mína sem mér þykir afar leiðinlegt. Eins áður hefur komið framm hér á blogginu mínu er ég í fjarnámi, sem gengur hægt í góða veðrinu en nú er bara að taka sig  í næstu rigningu .Verð vonandi duglegri við þetta og að heimsækja bloggvini mína.


Vantar þig vinnu , aukavinnu?

Og ert 20 ára eða eldri, mig vantar liðveislu. Nánari upplýsingar í síma 587 - 6278

Góð kveðja,

Elísabet


Þjóðhátiðar dagurinn

Ég óska Íslendingum öllum hvar sem er í heiminum til hamingju með daginn.

Ísl. fáninn

Vona ég að landsmenn njóti dagsins.


Rósa frænka í heimsókn

Jæja þá er komið að því að blogga , heldur langt síðan síðast, helsta ástæðan sumar. Ég hef alldrei verið dugleg að blogga á þeim árstíma,en ég ætla að reyna að gera betur en þetta.

Seinni partin á Föstudaginn var kom Rósa Aðalsteinsdóttir bloggvinur minn og frænka í heimsókn ,vorum við að hittast í fyrsta skipti þar sem við kynntumst hér á blogginu. Það var mjög gamana að hitta hana. Hún er mjög hress og skemmtileg , segir skemmtilega frá. Hún borðaði hjá okkur og var þetta yndisleg kvöldstun sem ég hefði ekki viljað missa af

 

IMG_1368

Rósa og mamma(Katý)

IMG_1383

Svona lítum víð nú út


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Elísabet Sigmarsdóttir
Elísabet Sigmarsdóttir

Ég hef mikinn áhuga á ferðalögum, börnum og eldamensku. Ég hef ferðast töluvert.t.d til Nýja Sjálands sem var alveg æðislegt, er mjög ánægð með að hafa gert það áður en ég þurfti að láta undan þróskunni og setjast alveg í hjólastól en það eru 10 ár síðan ég þurfti að gera það , sama ár og ég fór og ég kom heim frá NZ.

esigmarsdottir@simnet.is

------------------------------------

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Smelltu á þetta...

Ég er hér, kýktu<<<<<<<<<<

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband